19.3.2008 | 16:19
Páskafrí á Íslandi
Heil og Sæl öllsömul.
við verðum heima á Íslandi um páskana .... voða gaman saman ....
Lilja dafnar vel ...búin að fara 2 sinnum í barna sund í litltu laugina í Mosfellsbæ ... og finnst rosa gaman.
Borðum páskaegg saman um páskana .... geðilega páska allir saman 

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2007 | 20:10
Ég er orðinn PABBI !!!
Í morgunn þann 13.11.2007 kl. 09.01 fæddist lítil dama sem er 51 cm á lengd og 3585 gr á þyngd.
Þar sem ég ættla að halda uppi "Barnaland" síðu um okkar nýjasta fjölskyldu meðlim ætla ég að setja inn allar myndirnar eftir fæðinguna þar og skrifa aðeins um hvernig fæðinginn var.
svo ef þið hafið áhuga að skoða myndir eða forvitnast um sú litlu endilega "klikkaðu" á linkinn hérna vinstra meginn á síðunni, og hann færir ykkur beint á barnalandsíðuna. (lykilorðið er bærinn sem ég bý í)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.11.2007 | 21:01
Nýr Bíll !
Er búinn að kaupa mér nýjan bíl
....
Toyota Avensis varð fyrir valinu, 2007 árgerð af "SOL" útgáfu. Það er of margir aukahlutir til að ég nenni að skrifa þá hérna, en bíllinn er útbúinn öllu sem skiptir máli og miklu meir. Avensis er öruggur, sparneitinn, góður að keyra, og áreyðanlegur.... súper fínn fjölskyldu bíll ! hægt að lesa miklu meir á http://www.toyota.is/cars/new_cars/avensis/index.aspx
Mydir af bínum finnur þú í albúminu undir "nýr bíll"
Núna er ég mun nær þessari týpisku A4 fjölskyldunni, bara hundurinn eftir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2007 | 20:37
Ég er orðinn verulega spenntur !!!
Ég er að verða pabbi ..... og ég er orðinn verulega spenntur fyrir því að þessi litla prinsessa komi í heiminn því mig langar svo til að sjá hana .... en hún lætur bíða aðeins eftir sér ... verð að vera þolinmóður!
Dagurinn var settur... 6. nóvember .... sem var í gær .... svo við erum í yfirvinnu (við að bíða sjáðu til) núna byrjar nefninlega biðin .... og ég er ekki svo flínkur með það ... en ég á bestu dömu í heimi til að róa mig niður og passa að ég fari ekki yfir mig (en það er þessi ófríska sjáðu til, sem á að fara eiga fljótlega) ... hún er mitt yang, ef ég er ying sjáðu til ....
Ég er á "litlu" Super Puma 332 L/L1 og L2 sem er bara í 7 daga ... það er haldið í Kristjansund sem betur fer, því ég get þá skotist frá og keyrt til Molde þegar sú litla ákveður að mæta á svæðið ... en annrs eru þessi námskeið haldinn í Stavanger ... það hefði verið óheppilegt! ... ég hafði ekki mætt á það námskeið...
Síðast dagurinn á námskeiðinu á morgunn og því verður próf ..... ég er að reyna að lesa að sjálfsögðu en er meira spenntur fyrir því að borða bollurnar sem Mari var að enda við að baka .... ég fæ mér heldur kakó og heita bollu í staðin fyrir að lesa ....
Hvenar kemur þessi litla í heiminn eiginlega?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2007 | 18:25
Flaug Þyrlu í dag :)
Jebb....... Þetta er ekkert kjaftæði sko..... ég flaug þyrlu í dag ![]()
Það var þannig að þegar ég mætti í vinnunna í morgunn þurfti að taka smá "test" á einum hlut sem hefði verið skipt um í fyrrakvöld á einni af þyrlunum sem við erum með. Allavega þá þurfti að setja þyrluna í "hover" (það er að segja að hún flýgur lágt yfir jörðinni en er samt í kyrrstöðu) og svo þurfti að sjá hvernig þyrlan hegðaði sér í loftinnu, en ég var fenginn til að setja í aðstoðarflugmanna stólnum og skrifa niður ýmsar tölur sem þurfti að skrá niður. Þetta var mjög spennanndi því ég hafði aldre flogið í þyrlu áður. Eftir að við vorum búnir að setja þyrluna í gegnum allar þær aðstöður sem þurtfi og skrá niður þær tölur sem þarfnaðist, gaf flugmaðurinn mér leifi að taka í stjórn tækin. En hann var að sjálfsögðu með puttan á stýrispinnanum ef ég skyldi gera einhvað vitlaust. Mér tókst mjög vel til og náði að halda þyrlunni í ró og næði (í svifi) án mikillir fyrirhafnar, og ég fékk hrós fyrir það, og fékk svo að stýra þyrlunni þangað sem við þurftum að lenda, svo ég flaug áleyðis að lendingar staðnum og hélt sýðan þyrlunni í ró með stýripinnanum á meðan flugmaðurinn lét hana sýga rólega niður á jörðinna....... ÞETTA VAR GEGGJAÐ !!!! holy moly hvað mér þótti gaman í vinnunni í dag ....
En þetta var þyrla af týpunni Super Puma AS332 L ..... (sést á mynd í síðustu blogg færslunni minni)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Músíkk
Allt mögulegt um músíkk
Nokkuð Sniðugt
Allt Mögulekt sniðugt
- Önundarfélagið margir góðir á vestfjörðunum
- Allt Til sölu eða leigu í Noregi Bílar, hús, kettir og blómapottar... allt til sölu
- Íslendingabók Allir Víkingar á einum stað
- the world at your feet allir eiga að hafa þetta forrit ! það er ókeypis!
- Ski-info flest skíðasvæðinn í noregi
- Tusten skíðasvæðið í Molde
- Margar mjög sniðugar Listi yfir margar góðar síður, ísl. og erlent
- Heilunarsetrið Mamma heilar
- Norge í myndum Norskt "google earth"
Vinir og Vandamenn
Heima/Blogg síður hjá vinum og vandamönnum, að heiman og heima
-
Sigga frænka í
Sigga í USA -
Barnalands-síðan okkar
barnalands síðan hjá litlu snúllu... aðgangsorðið er.. molde
Barnaland.is -
Sandra Systir og Baldur og Jón Þór
Jón þór Baldursson á Barnalandi.is
Jón þór Baldursson -
Gummi og Þóra
Litla krílið þeirra Gumma og Þóru
It´s a boy -
Lilja frænka, og strákarnir
Danival Ísak og Dagur Aron -
Daníel og Maggý
Maggy -
Óskar og Dagbjört
Lífið í Noregi
331 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 12805
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
.




